Myndir
Fróðleikur

Notkunar skilmálar

Suluhryggir_Sydra-Fjallabaki_2004-01-11

Skíðamynd  


Forsíða
Búnaður
Á döfinni
ORION logo

Þetta vefsetur er unnið af:
  ORION Ráðgjöf ehf
  Akralind 8
  201 Kópavogi
  Sími: 552 9970
  Netf.: arni@orion.is
  Veff.: www.orion.is

Gamla myndin!

Skollahvilft Flateyri 1996

Staðsetning: Skollahvilft ofan Flateyrar.
Dagsetning myndar: Vorið 1996.
Efni: Skoðunarferð vegna fyrirhugaðrar hönnunar snjóflóðavarnarmannvirkja við Seljaland Ísafirði og ofan Flateyrar.
Á myndinni eru: nn, Þorsteinn Sæmundsson, Frode Sandersen, Karstein Lied, Magnús Már Magnússon, Oddur Pétursson og Atli Hauksson.

Snjósöfnunargirðing ofan Litlu Kaffistofnunnar

Staðsetning: Draugahlíðarbrekka ofan Litlu Kaffistofunnar 
Dagsetning myndar: Veturinn 1998-1999
Efni: Snjósöfnunargirðing hönnuð af Árna Jónssyni og Plastmótun fyrir Vegagerðina.  Markmiðið var annars vegar að endurnýta plastefni, t.d. ónýtar vegstikur, og hins vegar að minnka snjósöfnun inn á veginn.  Eins og sjá má virkar girðingin vel fyrir skafrenning úr norðri.  Skaflinn er myndarlegur en hann hefur ekki náð "fullum þroska" ennþá!
Undanfarin ár hafa vetur verið snjóléttir og því lítill snjór safnast við girðinguna.
Á myndinni er: Snjósöfnunargirðing. 

Haukadalur Dölunum 10/3 2001Haukadalur Dölunum 10/3 2001

Staðsetning: Haukadalur Dölunum
Dagsetning myndar: 10. mars 2001
Efni: Snjóflóð féll úr hlíðinni að kvöldi 7. mars 2001 og lenti það á jeppa með fjölskyldu innanborðs.  Jeppinn lenti í ánni neðan vegarins, sjá myndina.  Öll sluppu þau mjög vel, voru þó svolítið köld og hrakin, en þau komust til síns heima síðar um nóttina.  Leiðinda veður var þegar snjóflóðið féll.
Á efri myndinni má sjá jeppann, illa útleikinn.
Á myndinni er: Þjóðvegurinn utan í hlíðinni.

Snjóflóðið í Ólafsvík 20/3 1995

Staðsetning: Tvísteinahlíð ofan heilsugæslubyggingarinnar í Ólafsvík.
Dagsetning myndar: 20. mars 1995
Efni: Snjóflóð féll úr hlíðinni aðfararnótt 20. mars 1995, niður á heilsugæslubygginguna og skemmdi innanstokksmuni.
Myndin sýnir upptakasvæðið milli stoðvirkjanna.  Mikið hefur skafið í upptakasvæðið en þó sést hluti brotflatarins.
Á myndinni er: Neðri hluti Leifs Arnar Svavarssonar!

Staðsetning: Neðan Traðargils Súðavík (um 200 m ofan byggðarinnar).
Dagsetning myndar: September 1995.
Efni: Haustið 1995 var Ulrik Domås, snjóflóðasérfræðingur hjá NGI Noregi, í heimsókn á Íslandi.  Vefari ásamt Jóni Gunnari Egilssyni og Svönu Haraldsdóttur fóru með hann til vestfjarða til þess að skoða ummerki snjóflóðanna í Súðavík og til þess að skoða aðra snjóflóðastaði þ.a.m. Flateyri.
Gengið var upp snjóflóðafarveginn ofan byggðarinnar í Súðavík, upp á topp fjallsins, og síðan var haldið niður snjóflóðafarveginn í Traðargili.  Neðan gilsins komum við auga á jarðvegsskemmdir á aurkeilunni.  Ulrik var fljótur að átta sig á að þær voru eftir steina sem fylgt höfðu snjóflóðinu frá því í janúar.
Jarðvegsskemmdirnar, sem voru með 20-30 m  bili á aurkeilunni, voru raktar niður undir byggðina.
Þar fundum við tvo mjög stóra steina, sá stærri hefur líklega vegið um 20 tonn.  Hann má sjá á myndinni hér að ofan.
Á myndinni eru: T.v. Ulrik Domås frá NGI Noregi og Jón Gunnar Egilsson Veðurstofunni.  Myndina tók Árni Jónsson.
 

Staðsetning: Draumdalagil Bláfjöllum
Dagsetning myndar: Febrúar? 1995
Efni: Í byrjun febrúar 1995 lenti norskur telemark skíðamaður í snjóflóði í
Draumdalagili skammt norðan Eldborgargils í Bláfjöllum. Aðstæður voru með þeim hætti að norðan vindur hafði staðið í nokkra daga og töluverðan snjó skafið í hlésvæði. Undir snjónum var veikt lag sem gaf sig þegar skíðamaðurinn skíðaði inn í gilið með þeim afleiðingum að snjóflóð fór af stað.
Á myndinni eru: Björgunarmenn á vettvangi.  Myndina tók Árni Jónsson.

Staðsetning: Austan Bláfjalla við Kerlingarhnjúk.
Dagsetning myndar: Mars? 1995
Efni: Eftir snjóflóðin í Súðavík 1995 héldu nokkrir galvaskri björgunar-sveitarmenn til fjalla til að gera tilraun með hitamyndavél.
Forsagan var sú að það hafði spurst út að kindur hafi fundist í Súðavík með slíkri myndavél og því var ákveðið að gera smá tilraun til að kanna virkni hennar. 
Haft var samband við Hafstein Hilmarsson hjá Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins og hann fengin í lið með okkur.
Þrír vatnsbrúsar með heitu vatni voru grafnir niður og látnir bíða í nokkrar klst., á misjöfnu dýpi, meðan talið var að hitinn frá vatninu næði að hita upp snjóþekjuna.
Síðan var tekið til við að mynda.  Það var hins vegar sama hvað reynt var, ekkert sást.  Sólin hafði hins vegar mikil áhrif á hitann í yfirborði snjóþekjunnar þannig að reynt var að skýla myndatökustaðnum, sjá mynd.
Það var ekki fyrr en stungið var gat niður að vatnsbrúsunum að hiti náði að streyma upp og e.ð. sást.  Við vorum hins vegar reynslunni ríkari og töldum þessar myndavélar ekki henta okkur í björgunarstörfum a.m.k. ekki að sinni.
Á myndinni eru: T.v. Jón Ingi Sigvaldason, Leifur Örn Svavarsson á bak við Jón Inga, óþekktur og Hafsteinn Hilmarsson.  Myndina tók Árni Jónsson.
 

SnjóflóðSkafrenningurÓlík form snævarGamla myndinÝmsar myndir









                                                 Titiltexti