Forsíðan
2. jan. 2010
Gleðilegt ár 2010
Snjoflod.is óskar öllum lesendum gleðilegs árs og þakkar fyrir allt gamalt og gott.
Í upphafi árs er rétt að hvetja alla þá sem hyggja á fjallaferðir að hafa eftirfarandi atriði í huga:
|
Atriði
|
Lýsing
|
|
Mannlegi þátturinn
|
Erum við með réttan búnað?
Erum við með næga reynslu?
Erum við tilbúin í verkefnið?
|
|
Landslag
|
Geta snjóflóð farið af stað?
|
|
Snjóþekjan
|
Eru vísbendingar um nýleg snjóflóð?
Eru vísbendingar um veik lög í snjónum?
Hefur ofankoma og/eða vindur verið undanfarið?
|
|
Afleiðingar
|
Hvað gerist/getur gerst ef snjóflóð fellur?
|
|
Í snjóflóðinu
|
Reyndu að koma þér úr flóðinu!
Reyndu að halda þér ofan á flóðinu!
Reyndu að gera loftrými við vit áður en allt verður fast/hart!
|
24. des. 2009
Jólakveðja
Snjóflóð.is óskar lesendum Gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
30. nóv. 2009
Upplýsingaveita fyrir iPhone frá Mammut í Sviss
Nú nýlega sendi Mammut fyrirtækið í Sviss frá sér hugbúnað fyrir iPhone símana frá Apple.
Þessi búnaður gerir "fjallanördum" kleyft að nálgast upplýsingar um snjóalög og snjóflóð (e: avalanche bulletins)
frá ýmsum aðilum víða um heim.
Þá er hægt að nota símann til þess að mæla landhalla (t.d. til að meta snjóflóðahættu),
í honum er áttaviti og hæðarmælir.
Sniðugt tæki fyrir þá sem ferðast um fjalllendi. Í dag eru ekki gefnar
út upplýsingar um snjóalög og snjóflóðahættu fyrir almenning hér á landi og þar af leiðandi virkar sá hluti ekki hér.
Slóðin á heimasíðuna er:
http://www.mammut.ch/en/safetyapp.html

28. nóv. 2009
Mat á snjóflóðahættu
Norges Geotekniske Institutt (skammstafað NGI) hefur útbúið flæðirit
sem á að auðvelda þeim sem um fjalllendi fara að vetri að leggja mat á hugsanlegar snjóflóðaaðstæður.
Þó að flæðiritið líti kannski svolítið flókið út þá er það í raun ekki svo.
Hér er myndræn samantekt á þeim atriðum
sem þarf að fara yfir (annað hvort í huganum eða milli manna í hópum) þegar ferðast er um fjalllendið að vetri.
Stærri mynd fæst með því að smella á myndina.
.
25. nóv. 2009
Nýr Arva Link snjóflóðaýlir
Á ráðstefnu Alþjóða fjallabjörgunarráðsins (ICAR), sem haldin var í Zermatt í
Sviss í lok september s.l., var kynntur nýr þriggja loftneta ýlir af gerðinni Arva og kallast hann Arva Link.
Arva Link er að hluta til þróaður í samstarfi við framleiðanda Barryvox Pulse snjóflóðaýlisins og geta þessir
ýlar "talað saman" og/eða nýtt sér viðbótartíðnina (W-link sem er á 868 MHz) sem Pulse er með ("W-link" getur m.a. sent upplýsingar um
lífsmörk fórnarlamba en einnig er möguleiki á því í framtíðinni að þeir sendi upplýsingar sín á milli).
Það verður spennandi að sjá hvernig þessir nýju ýlar virka.
Arva ýlar hafa verið til í allmörg ár þó þeir hafi ekki
verið fluttir til Íslands fyrr (að því er vefari veit best). Sjá
nánari umfjöllun um þennan ýli á:
http://pistehors.com/news/ski/comments/0944-arva-link-sets-avalanche-beacon-standards/
Vefari hefur heyrt af einum söluaðila hér á landi sem er að undirbúa innflutning á þessum ýli.
Nánri fréttir berast af því þegar þær verða staðfestar.
Nýr Arva Link.
24. nóv. 2009
Uppfærslu hugbúnaðar snjóflóðaýla
Á þessu hausti hafa framleiðendur snjóflóðaýla af gerðinni Barryvox Pulse og Ortovox S1 sent frá sér nýjar uppfærslur hugbúnaðar.
Vefari hvetur alla eigendur ýla af þessum gerðum til þess að hafa samband við söluaðilana og láta þá uppfæra hugbúnaðinn sem fyrst.
Framleiðandi Pieps DSP kom ekki með nýja útgáfu hugbúnaðar á markað þetta haustið þannig að síðasta uppfærsla þeirra er 6.2 og kom hún í fyrravetur.
Þeir sem ekki eru með þessa útgáfu ættu að uppfæra ýlinn yfir í hana.
Einhverjir gætu spurt hvort nauðsyn sé á þessum uppfærslum. Vefari telur svo vera, þetta er eins og með hugbúnað tölva,
það er alltaf verið að lagfæra og/eða endurbæta hugbúnaðinn sem fyrir er til þess að hann virki betur.
Það ættu því allir að láta uppfæra hugbúnað Barryvox Pulse, Ortovox S1 og Pieps DSP í það nýjasta í dag.
Söluaðilar eru:
Barryvox Pulse: Safalinn/Þorvaldur
Ortovox S1
Útilíf Glæsibæ/Gísli Páll
Pieps DSP
Safalinn/Þorvaldur

13. nóv. 2009
Síðan vaknar til lífsins
Snjóflóðasíðan er að vakna til lífsins þennan veturinn. Reyndar er nú
ekki mjög vetrarlegt þessa dagana en von er á því að það breytist á næstunni
a.m.k. norðan og vestanlands.
Nýjungar í sambandi við þessa síðu og málefni hennar er að nú er búið að
stofna síðu á Facebook og Twitter, sjá íkon hér til vinstri. Vefari
gerir ráð fyrir því að það verði meira líf á Facebook og Twitter, en á
www.snjoflod.is verði frekar greinar og fræðsluefni sem ekki kemst á
Facebook eða Twitter.
Það er von vefara að lesendur og allir þeir sem áhuga hafa á snjó og
snjóflóðamálum nýti sér þessa tvo nýju kosti, spyrji spurninga og deili
fróðleik eftir því sem hægt er.
Vefari fór á tvær ráðstefnur um snjó, snjóflóð og snjóflóðabjörgunarmál s.l.
september. Efni frá þessum ráðstefnum birtist vonandi smám saman annað
hvort hér að
www.snjoflod.is eða
Facebook.

ICAR ráðstefnan í Matterhorn. Mynd frá æfingarsvæðinu við Klein
Matterhorn (vinstra megin á myndinni).
Margir hafa komið að máli við vefara og rætt um snjóskóflur, hvaða skófla
hentar best í þetta eða hitt. Vefari er kannski ekki sérfræðingur um
skóflur en það eru þó nokkur atriði sem vert er að hafa í huga. Fyrst
og fremst er um að ræða til hvers nota á skófluna þ.e. er markmiðið að nota
hana í ferðalögum eða er hún ætluð til skipulagðra björgunarstarfa.
Sjá nánar um skóflur hér./div>