27. desember 2007
Skemmtilegt form á ís
Á heimasíðunni
www.slightlywarped.com birtist þessi mynd, ásamt nokkrum öðrum
frá sama stað. Hér er um einskonar ísöldu að ræða en annars eru litlar
upplýsingar með myndinni aðrar en þær að þær eru teknar á Suðurskautinu.
Jöklafræðingur einn velti vöngum yfir því hvort þetta væru raunverulegar
myndir eða tölvuunnar. Við látum það liggja milli hluta en myndirnar
eru engu að síður góðar.
24. desember 2007
Jólakveðja

Vefari óskar lesendum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
22. desember 2007
Loftsekkir - ný útfærsla
Svissneska fyrirtækið
Snowpulse framleiðir
ABS loftsekki í bakpoka ferðalanga. Síðastliðinn vetur var stutt frétt
um þessa bakpoka hér á síðunni.
Nú hefur fyrirtækið fengið verðlaun fyrir nýja hönnun og er stefnt að því að
setja hana á markað innan skamms. Hér er um að ræða sekk sem blæs upp,
úr axlarólunum, utan um höfuðið og niður að brjósti eins og myndin sýnir.

Hér er því nánast um risavaxið
björgunarvesti að ræða!
Framleiðendur telja að með þessu móti takist þeim að auka líkur á því að
loftrými verði við vit fórnarlambanna á meðan þau veltast með snjóflóðinu en
einnig ver sekkurinn höfuðið fyrir höggum.
Það þarf að toga í handfang framan á
axlarólinni til að opna fyrir loftventil og það tekur um 3 sekúndur að blása
sekkinn upp. Eftir um 90 sekúndur sígur loftið úr sekknum og myndast
þá rými við vit fórnarlambsins og lífslíkur ættu að aukast verulega.
Að hluta endursagt úr Pistehors.com
21. desember 2007
Lífslíkur í snjóflóðum - upplýsingar frá Caic
Á heimasíðu
Caic er að finna
áhugavert graf yfir lífslíkur í snjóflóðum í BNA.
Ljósgráar súlur sýna þá sem finnast lifandi en svartar sýna þá sem finnast
látnir. Dýptartölurnar eru í fetum; 3 fet eru u.þ.b. 1 m.
Rannsóknaraðilar í BNA benda á að nokkur
skekkja sé í þessum tölum þar sem þeim fer fækkandi sem tilkynna um
snjóflóðaóhapp þar sem allir sleppa lifandi.

Á myndinni hér að neðan eru
snjóflóðaslysin flokkuð eftir því hvað menn eru að gera. Búna línan
sýnir snjósleðaslys og er athyglisvert hversu bratt hún vex eftir 1990.

21 desember 2007
Útilíf afhendir tvö eintök af S1 snjóflóðaýli til Landsbjargar
Gísli
Páll hjá Útilíf greindi frá því í vikunni að Útilíf hefði afhent Landsbjörg
fyrstu tvo S1 snjóflóðaýlana. Ýlarnir eru ætlaðir til þjálfunar og
gefst leiðbeinendum kostur á því að fá þá lánaða til notkunar á námskeiðum.
Það verður spennandi að sjá hvernig þessi
nýja hönnun virkar í mörkinni og vefari bíður spenntur eftir því að fá að prófa þá.
Á heimasíðu Ortovox er að finna ágætar
upplýsingar um þennan nýja grip, sjá
heimasíðu Ortovox.
16. desember 2007
Vegagerðin með fræðslu um snjóflóð
Í síðustu viku hélt Vegagerðin á Akureyri námskeið um snjóflóð ofl. fyrir
nokkra starfsmenn sína og undirverktaka sem sinna vetrarþjónustu.
Markmið námskeiðsins var að kynna þeim snjóflóðastaði þar sem
undirverk-takarnir vinna, öryggisbúnað og leit og björgun úr snjóflóðum.

Þátttakendur á námskeiðinu. Mynd: Árni Jónsson, 13/12 2007.
11. desember 2007
Stilling á Barryvox Pulse snjóflóðaýli
Nú er vetur genginn í garð og tími kominn til þess að skoða vetrarbúnaðinn.
Þeir sem hafa útvegað sér Barryvox Pulse ýli ættu að huga að stillingum hans.
Hér eru nokkur atriði varðandi heppilega uppsetningu á Barryvox Pulse.
| -Language: |
English |
| -Analog mode: |
on |
| -Audio support <3m: |
off |
| -Pinpoint view <3m: |
Cross |
| -Auto-revert to send: |
4 min |
| -Vital data: |
on |
| -Owner: |
Skrá t.d. nafn og kennitölu |
| -W-link: |
Region A |
| -Calibrate compass: |
Við fyrstu notkun |
| -Maintenance: |
- |
| -Reset device: |
- |
| -Exit: |
- |
Einnig þurfa þeir sem hafa hug á því
að kaupa þennan ýli í BNA að átta sig á því að tíðnisviðið sem þar er
notað til að senda lífsmörkin er ekki það sama og er í Evrópu. W-link
verður því að vera: Region A til þess að tækið nýtist
til fullnustu hér á landi.
8. desember 2007
Snjóflóðaleitaræfing í Drottningargili í Bláfjöllum
Nokkrir hressir hjálparskátar úr Kópavogi
nýttu góða veðrið í dag til þess að æfa leit í snjóflóðum í Drottningargili
í Bláfjöllum. Meðal annars var farið yfir og æfður gröftur að
fórnarlömbum samkvæmt aðferð Bruce Edgerly og Dale Atkins annars vegar og
Manuels Genswein og Ragnhild Eide hins vegar.

Gröftur niður að fórnarlambi snjóflóða. Graftraraðferð: V-gröftur.
Á myndinni eru Ingvar, Kalli, Arnar og Stebbi úr HSSK. Ljósmynd: Árni
Jónsson 8/12 2007.
Eftir nokkrar umræður um ágæti aðferðanna
fannst mönnum V-gröftur Manuels og Ragnhild vera líklegri til þess að skila
meiri afköstum þ.e. fljótar yrði komið niður að fórnarlambi. Nánar
verður fjallað um þessar aðferðir hér á síðunni innan tíðar.
6. desember 2007
Skíðasvæðin að opna
Nú berast fréttir af því
að skíða-svæðin séu að opna hvert á fætur öðru. Í dag var viðtal við Óskar á
Dalvík, í útvarpinu, og þar hafa þeir reyndar verið með opið í nokkra daga fyrir æfingakrakka
en í dag á að opna fyrir almenning og það er ókeypis í fjallið.
Akureyringar hafa verið að auglýsa
í fjölmiðlum að opnað verði hjá þeim um helgina og svo hafa fregnir borist af því að
opna eigi hluta af Suður-gilinu í Bláfjöllum um helgina fyrir æfingakrakka og
fyrir almenning frá kl. 14:00 á laugardag.
5. desember 2007
Hvernig væri að drífa sig til fjalla og skoða snjóalög?

Gott skíðafæri og veður var í Bláfjöllum
um síðustu helgi. Útlit er fyrir að eitthvað bæti í snjóinn þar og
víðar á landinu næstu daga og því tilvalið fyrir snjókarlana og konurnar
að drífa sig um helgina til fjalla og stúdera snjóalög; læra
að lesa í snjóinn, lesa í landið og lesa í veðrið.
1. desember 2007
Lítið snjóflóð í Bláfjöllum

Snjóflóð úr hlíðinni norðan Draumdalagils. Ljósm. Árni Jónsson,
1/12 2007.
Lítið snjóflóð er sjáanlegt í hlíðinni
norðan Draumdalagils á Bláfjallasvæðinu. Þetta flóð er þunnt en nokkuð
breitt (150-200 m) og hefur líklega fallið í fyrradag þ.e. þann 29/11 2007.
Skíðafæri er annars ágætt þar sem snjór er
í Bláfjöllum og fór vefari eina salíbunu þar í dag.
30. nóvember 2007
Handbók fyrir þá sem vilja skoða snjóalög
Á snjóflóða og útilífsráðstefnunni sem haldin
var í Lom í Noregi í byrjun nóvembermánaðar kynnti Krister Kristensen hjá
NGI nýja útgáfu af handbók fyrir þá sem vilja skoða snjóalög og flokka þau
niður. Handbókin heitir á
norsku:
Håndbok for observatører
Vær-, snø- og snøskredobservasjoner.
Frumdrög þessarar bókar voru unnin í samstarfi við
Veðurstofu Íslands um árið 2001 en aldrei var lokið við þau.
Nú hafa norðmenn hins vegar lokið við sinn hluta og er hægt að
nálgast handbókina
hér.
Bókin byggir á alþjóðlegum reglum sem m.a.
eru notaðar í Ölpunum og Norður Ameríku.
29. nóvember 2007
Hugleiðing um snjóflóðaýla og talstöðvar
Þessa dagana er verið að kynna Tetra
fjarskiptabúnaðinn fyrir björgunarsveitarfólki víða um land. Að sögn
þeirra er gerst þekkja er þetta góður og öflugur búnaður sem muni auka og/eða
bæta samskipti milli ólíkra björgunaraðila í aðgerðum og á æfingum.
Þessi
fjarskiptavæðing leiðir hugann að öðrum búnaði sem mikilvægur er öllum þeim
er um fjalllendi fara að vetrarlagi, nefnilega snjóflóðaýlum.
Mikil áhersla er lögð á að snjóflóðaýlar séu bornir innanklæða framan á
líkamanum sbr. myndina hér til hliðar. Svoleiðis hefur það verði í
fjölda ára. Talstöðvar hafa einnig verið bornar framan á líkamanum til
fjölda ára. Nú er hins vegar svo komið að framleiðendur snjóflóðaýla
eru farnir að vara við því að hlutir eins og talstöðvar, farsímar eða málm-
og segulhlutir séu hafði nær snjóflóðaýlum en 50 sm því þessir hlutir trufla
ýlana.
Það er því rétt að björgunarsveitarfólk veiti þessu athygli og hugi að öðrum
stöðum sem hægt er að vera með talstöðvar á. Það er mat vefara að
þegar snjóflóðaýlir er hluti af búnaði í ferðum eða aðgerðum þá verði hann
látinn ráða staðsetningu annars búnaðar sem björgunarsveitarmenn þurfa að
hafa á sér.
Þessa hluti þarf að taka upp í sambandi við fræðslu um fjarskiptabúnað og
snjóflóðaýla hjá björgunarsveitunum!
28. nóvember 2007
ISSW 2009 í Davos Sviss
Í dag var tilkynnt að ráðstefnan International Snow Science Workshop (ISSW)
yrði haldin í Davos Sviss dagana 29. september til 2. október árið 2009.
Þetta er í fyrsta skiptið sem þessi ráðstefna er haldin í Evrópu en hingað
til hefur hún verið haldin til skiptis í Bandaríkjunum og Kanada.
Þessi Evrópuvæðing verður vonandi til þess að fleiri Evrópumenn sjá sér fært
að mæta en verið hefur á ráðstefnunum vestan Atlantshafsins hingað til.
Næsta ISSW ráðstefna verður haldin í
Kanada næsta haust, sjá nánar hér.
25. nóvember 2007
Nýr Freeride snjóflóðaýlir frá Pieps
Fyrir skömmu sendi
Pieps
frá sér nýjan snjóflóðaýli sem þeir kalla Freeride.
Eins og nafnið bendir til þá eru þeir að reyna að höfða til þeirra
sem stunda utan brauta skíðun (freeride) og er markmiðið
sennilega að ná til þeirra sem ekki hafa efni á því að kaupa þriggja
loftneta ýlana.
Snjóflóðaýlir þessi er digital en aðeins með eitt loftnet sem liggur langs
eftir tækinu. Stærð þess er
nokkuð minni en annarra ýla og það er einnig töluvert léttara eða aðeins um
110 grömm. Samkvæmt upplýsingum
framleiðanda er drægni þess um 40 m og ráðleggur hann að bil á milli
leitarlína sé 30 m.
Kristalla skjár er á ýlinum og kemur þar fram styrkleiki á batteríi og
fjarlægðartölur og ör þegar ýlirinn er á leitarstillingu.
Auðvelt er að skipta milli sendingar og leitar og er það gert með því
að ýta þrisvar sinnum á takkann við hlið skjásins.
Til þess að fara aftur á sendingu þarf að halda takkanum inni í þrjár
sekúndur.
Þegar merki greinist í leit kemur fram mynd af fórnarlambi og ef fleiri en
eitt merki koma fram þá eru þrír punktar merktir undir fórnarlambinu.
Ýlirinn sýnir aðeins fjarlægð að sterkasta merkinu þegar fleiri en
einn eru grafnir í snjóflóði.
Mikilvægt er að hafa í
huga að ýlirinn fer EKKI sjálfkrafa yfir á sendingu ef leitarmenn lenda í
öðru snjóflóði!
Leitarmenn þurfa að halda takkanum inni í þrjár sekúndur til þess að tækið
fari aftur á sendingu!
Vefari gerði smá tilraun með Freeride snjóflóðaýlinn og var leitað að Pieps
DSP snjóflóðaýli sem var með batterí sem hafði 50% styrk skv. DSP ýlinum.
Merktar voru línur í 10, 20 og 30 m fjarlægð frá Pieps DSP og kannað
hvenær Freeride ýlirinn næmi merkið frá DSP.
Í nær öllum tilfellum var það í um 20 m radíus frá DSP ýlinum og
sýndi Freeride þá um 45 m í DSP ýlinn.
Styrkleikaör kemur fram ofan við töluna á skjánum og segir hún til um
það hvort verið er að ganga í rétta stefnu eða ekki.
Hér hefur aðeins lauslega verið fjallað um þennan nýja ýli.
Hann minnir um margt á Ortovox M2 nema stærð hans.
Þó að hann sé lítill og þjáll í meðförum þá má setja stórt
spurningarmerki við hann þar sem beita þarf leitartækni sem þróuð var fyrir
eins loftneta ýla (sem hefur ýmsa ókosti samanborið við þriggja loftneta ýla
í dag) og þá fer hann ekki sjálfkrafa yfir á sendingu ef leitarmenn lenda í
öðru snjóflóði.
Verð þessa ýlis er ekki ennþá vitað þegar þetta er ritað (ýlirinn kom til
landsins þann 23. nóv. 2007) en væntanlega er það nokkuð undir verði Pieps
DSP og sambærilegra ýla.
Nánar má fræðast um ýlinn í handbókinni á slóðinni:
http://www.pieps.com/cms/media/manuals/manual_free_en.pdf
24. nóvember 2007
Gazex-gasbyssan
Ýmsar aðferðir getur verið nauðsynlegt að nota til þess að
koma í veg fyrir að snjóflóð valdi manntjóni. Um nokkurt árabil hefur
franska fyrirtækið T.A.S. framleitt gasbyssu undir nafninu Gazex.
Þessi gasbyssa er sett í upptakasvæði snjóflóða og er henni ætlað að koma
snjóflóðum af stað með því að valda snöggu álagi á snjóþekjuna með
sprengingu.
Ástæða þess að menn vilja koma snjóflóðum af stað er sú að
með því að stýra því hvenær það gerist má minnka snjómagnið sem kemur niður
og skaðinn ætti því að vera lítill eða enginn.
Þessi að ferð er mikið notuð við vegi og á skíðasvæðum
erlendis og nú er verið að skoða hvort uppsetning slíkrar byssu hentar ofan
eins vegkafla hér á landi.
Gasbyssa í Ölpunum. Ljósm. T.A.S.
17. nóvember 2007
Snjóframleiðsla í Tindastóli
Þessar vikurnar eru Skagfirðingar í óða önn að ljúka
uppsetningu snjó-framleiðsluvéla og búnaðar á skíðasvæði sínu í Tindastóli.
Hér er um að ræða þrjár vélar og mun þær bæta snjóaaðstæður verulega að sögn
Viggós Jónssonar forstöðumanns.
Í dag eru skíðasvæðin í Hlíðarfjalli og í Böggvistaðafjalli einu svæðin sem
geta framleitt snjó og hafa gert það undanfarin þrjú ár.

12. nóvember 2007
Ráðstefna um útiveru og snjóflóð, Lom Noregi
Vefari brá sér til Lom í Noregi í síðustu viku til þess að
sitja ráðstefnu um útiveru og snjóflóð. Ráðstefna sem þessi er haldin
annað hvert ár af NGI, norska Rauða krossinum, norska ferðafélaginu og
hernum.
Margt fróðlegt kom þarna fram og áhugavert að fylgjast með því sem norðmenn
eru að gera þó ekki sé það allt sem hentar okkur hér á klakanum.
Manuel Genswein var einn gestafyrirlesaranna þarna og eitt af
því sem hann kynnti ásamt Ragnhild Eide frá Noregi var ný aðferð við gröft á
fórnarlömbum úr snjóflóðum. Nánar verður gerð grein fyrir þessari aðferð
innan skamms hér síðunni og einnig verður greinin þeirra þýdd á íslensku.
Þá greindi ungur norðmaður frá reynslu sinni og félaga sinna
en þeir lentu í snjóflóði í byrjun október s.l. Allir sluppu lifandi
en greinilegt var að litlu mátti muna að ekki færi verr.
Nokkrum punktum frá ráðstefnunni verður bætt inn á síðuna á
næstunni.

Æfing í leit að snjóflóðaýlum (fórnarlömbum) á ráðstefnunni. Loftnetið
hangir niður úr þyrlunni. Ljósm. Árni Jónsson 10/11 2007.
2. nóvember 2007
Breytingar í Bláfjöllum
Þessa dagana er verið gera viðamiklar breytingar á s.k.
norður skíðaleið í Bláfjöllum. Unnið er að því að flytja til mikið
efni og minnka hallann sem var nyrst á leiðinni þannig að hún verði
auðskíðuð fyrir hvern sem er. Jafnframt verður krappa beygjan tekin af.
Á myndinni má sjá hvar verið er að vinna en mikið er samt eftir að gera.

Norðurleiðin Bláfjöllum. Ljósm. Árni Jónsson 28/10 2007
28. október 2007
Snjóflóðaslysatölfræði frá Noregi

Þessi tafla sýnir fjölda látinna í snjóflóðaslysum í Noregi frá árinu 1972
til ársins 2002. Það er athyglisvert að tæpur helmingur þeirra sem
látist hafa tengjast ekki fjallaferðum eða útiveru heldur láta lífið af
völdum snjóflóða við dagleg störf.
Síðastliðinn vetur létust þrír í snjóflóðaslysum í Noregi. Nánar er
hægt að lesa um þetta á www.snoskred.no
5. október 2007
Snjósleðar og snjóflóð

Snjóflóð og sleðamenn í Mýrdalsjökli. Ljósm.
Óþekktur.
Eftirfarandi grein er að hluta til þýðing á grein eftir Mary
Clayton og er hana að finna á síðu
Canadian Avalanche
Association.
Eftir því sem snjósleðar verða öflugri og leikni ökumanna
meiri eykst möguleiki þeirra á því að skoða svæði á fjöllum sem áður hafa
ekki verið könnuð. Áður en þú leggur í sleðaferð þá þurfa sleðamenn að
vera meðvitaðir um hugsanlega snjóflóðahættu.
Um það bil 90% af snjóflóðaslysum eru af manna völdum.
Það þýðir að snjóflóð koma ekki bara si svona niður fjallshlíðar án ástæðu.
Þú eða einhver úr hópnum getur komið af snjóflóði með því að vera í
brekkunni á röngum tíma. Það er þess vegna sem það er svo mikilvægt að
kunna að lesa í landið og vita hvenær þú og félagarnir eru að taka áhættu.
Snjóflóð geta fallið þar sem nægur snjór er og nægur halli. Það þarf
ekki mikið til, aðeins um 30 sm af snjó og halla um og yfir 25°.
Yfir vetrartímann breytist snjóþekjan og því eru
snjóflóðaðstæður alltaf að breytast. Stundum er í lagi að ferðast um
fjalllendi og stundum ekki.
Í framhaldi af þessu er rétt að benda ferðalöngum á að kynna
sér vel allar aðstæður áður en haldið er af stað til fjalla. Veðurspá
og veður undanfarna daga spila þar stórt hlutverk.
21. október 2007
Nýjar fréttir frá RECCO
Recco
kynnti nýja gerð, R9 á ICAR ráðstefnunni í Pontresina í
Sviss um helgina. Eins og sjá má á myndinni hér að ofan hefur tækið
minnkað töluvert frá R8 gerðinni (sjá nánar um
eldri Recco hér). Tækið er nú aðeins um 900 grömm og er komið með
LED borð er sýnir styrk og með LI-ion hleðslubatteríum. Þá er einnig
hægt að hlusta á merkið frá tækinu í litlu heyrnartæki sem getur fallið vel
undir hjálm.
Recco tækið er með áhugaverða nýjung en það er móttökuloftnet fyrir
snjóflóðaýla á tíðninni 457 kHz. Hægt er að leita á báðum tíðnisviðum
í einu (Recco/457 kHz) eða á annarri hvorri tíðninni.
Um 150 vörumerki eru nú með Recco flögur í fatnaði/búnaði og einnig er hægt
að fá lausar flögur og setja á búnað/fatnað.
Það er nokkuð ljóst að Recco er í mikilli sókn og R9 tækið gæti nú loksins
orðið tæki sem auðvelt er að ferðast með.
Fréttatilkynningu Recco er hægt að lesa
hér.
17. október 2007
ICAR ráðstefnan í Pontresina
Þessa dagana stendur yfir ráðstefna Alþjóða
fjallabjörgunarráðsins (International Commission on Alpine Rescue -
ICAR) í Pontresina í Sviss.
Íslendingar eru nú með í fyrsta skiptið og sitja tveir íslendingar
ráðstefnuna.
ICAR hefur mikil áhrif í sambandi við fræðslumál og búnað og
má m.a. benda á að samtökin hafa gefið út DVD disk (Time is life) sem
fjallar um snjóflóð, björgun úr þeim og hvað gerist þegar menn lenda í
snjóflóðum. Þá hefur ICAR mikil áhrif á þróun snjóflóðaýla.
16. október 2007
Afmæliskveðja
Í dag, þann 16. október, er Þorvaldur (Olli) Víðir Þórsson
fimmtugur. Olli hefur frá ársbyrjun verið að dunda við að labba á 100 fjallstoppa sem eru hærri en 1400 m.
Lokaáfanginn var síðastliðinn laugardag er hann labbaði ásamt um 70 manns
á topp Heklu.
Snjóflóðasíðan fékk að láni hjá honum myndirnar hér að neðan
og eru þær teknar á Vatnajökli.
Það hefur mátt skilja á Olla að veður hafi ekki alltaf verið eins gott og
þegar þessar fallegu snjóamyndir voru teknar.

Séð í átt að Kirkjunni.

Annað sjónarhorn að Kirkjunni.

Séð í átt að Breiðamerkurjökli.
12. október 2007
Skilafrestur úrdráttar greina að renna út
Um næstu mánaðarmót rennur út frestur til þess að skila inn
úrdrætti greina fyrir alþjóðlegu ráðstefnuna
International Symposium on Mitigative
Measures against Snow Avalanches sem haldin verður á Egilsstöðum í
mars á næsta ári.
Ráðstefnan mun fjalla um snjó-flóðavarnir, umhverfi og samfélag og er markmiðið að reyna að fá þverfaglega umræðu um þessa hluti.
Allir sem áhuga hafa eru hvattir til þess að skrá sig á ráðstefnuna og koma
með greinar sem fjalla um ofangreind málefni.
Veffang ráðstefnunnar er:
www.orion.is/snow2008
10. október 2007
Snjóflóðaýlar
Síðastliðinn vetur voru tveir nýir snjóflóðaýlar kynntir hér
á síðunni. Þetta voru ýlarnir Tracker og Ortovox S1.

Fram kom að nýja útgáfan af Tracker hafi átt að koma á markað nú í
haust en þegar heimasíða
Tracker er
skoðuð þá er gamla gerðin ennþá í kynningu þar.
Ef einhver hefur nýjar upplýsingar um Tracker þá væru þær vel þegnar og
verða þær kynntar hér á síðunni.
Ortovox S1 er
búinn að vera í kynningu í allnokkur ár og á tímabili var jafnvel búist við
því að hann kæmi ekki á markað sökum tæknilegra vandkvæða. Nú hefur
Gísli Páll hjá Útilíf
hins vegar upplýst vefara um það að ný og endurbætt
útgáfa af tilraunaútgáfunni sé kominn á markað og að hún sé að koma
til landsins nú í haust.
Það verður spennandi að fá að prófa þennan ýli og bera hann saman við
Barryvox Pulse.