Myndir
Fróðleikur
www.snjoflod.is

Notkunar skilmálar

Suluhryggir_Sydra-Fjallabaki_2004-01-11

Skíðamynd  

 


Forsíða
Búnaður
Á döfinni
ORION logo

Þetta vefsetur er unnið af:
  ORION Ráðgjöf ehf
  Foldarsmára 6
  201 Kópavogi
  Sími: 552 9970
  Netf.: arni@orion.is
  Veff.: www.orion.is

Snjó(flóða)skóflur

Samantekt haustið 2009

Hér er samantekt á nokkrum skóflum sem eru á markaðnum í dag og vefari hefur fundið.  Ekki er víst að allar þessar skóflur séu til hér á landi en væntanlega er hægt að nálgast þær í gegnum umboðin eða beint af netinu.
Allar upplýsingarnar eru eins og þær komu fyrir á heimsíðum framleiðenda/seljenda.

Skjalið opnast sem pdf-skjal.

 

Samantekt 2007

Snjó(flóða)skóflur eru af ýmsum gerðum og stærðum og það er því afar mikilvægt að þeir sem ætla að nota slíkan grip séu vissir á því hvaða skófla hentar þeim hvað best. Hér að neðan verður farið yfir nokkur atriði sem vert er að skoða þegar verið er að ákveða skóflukaup.

Ferðamátinn

Það skiptir miklu máli hvernig ferðamátinn er.  Fjallgöngumenn kjósa helst að hafa eins létta og netta skóflu eins og hægt er á meðan þeir sem ferðast um á farartækjum megin hluta tímans geta leyft sér að burðast með aðeins efnismeiri og sterkari skóflu.

Úr hvaða efni eru skóflurnar?

Hægt er að fá skóflur úr álblöndum, stáli, fíber og plasti.  Þær léttustu eru úr plasti, carbon-fíber eða þunnri álblöndu og henta ágætlega til langra gönguferða en efnismeiri skóflur úr álblöndum eða stáli henta fyrir styttri göngur og á eða með farartækjum.

Handfang skóflu

Í megin atriðum er hægt að tala um þrjár tengundir handfanga á skóflum.  Fyrst ber að nefna s.k. D-handfang, þá T-handfang og síðast L-handfang.

D handfangT handfang L handfang 

D-handfangið er talið það besta enda hentar það vel til grips og mokandinn þreytist síður þegar mikið þarf að moka við erfiðar aðstæður.  Skóflur með D-handfanginu eru yfirleitt öflugar skóflur og ekki þær léttustu. T- og L-handföngin eru algeng á léttum plast, fíber og álskóflum en þau henta ekki eins vel til mikils moksturs.

Skaft skóflu

Það eru aðallega tvö þversniðsform á sköftum.  Annars vegar er um að ræða hringlaga form og hins vegar sporöskjulaga form.

Hringlaga skófluskaft         Sporöskjulaga skófluskaft

Kostir sporöskju-formsins eru þeir helstir að allt álag á festingar (fjaðurpinna sem smella í göt) á skafti við blað er umtalsvert minna en í hringlaga formi.  Í sporöskjunni getur skafti ekki snúist við blaðið vegna formsins en það getur það í hringlaga formi.  Það eru því eingöngu pinnarnir sem koma í veg fyrir að blað snúist á skaftinu í hringlaga formi.  Ef þeir bila, eins og æði oft hefur komið fyrir, þá er vart hægt að nota skófluna nema til séu varahlutir á staðnum.

Lengd skafta er breytileg, sum sköftin eru lengjanleg og þá getur heildar lengd skóflu verið um og yfir metri að lengd.  Stutta skóflur henta vel í litlu rými og þegar ferðast er með þær en langar skóflur henta vel þegar grafa þarf djúpt niður í snjóinn/snjóflóðið. Sumar tegundir eru með lengjanlegu skafti og oftast er framlengingin inni í skaftinu. Sum sköft geyma jafnvel stuttar og grannar snjóflóðaleitarstangir!

Blað skóflu

Ef menn vilja fá sér virkilega góðar og öflugar skóflur úr álblöndum þá er rétt að athuga hvort blaðið er sérstaklega hert eða ekki.  Slíkar skóflur eru sennilega þær bestu á markaðnum í dag. Þessar skóflur eru heppilegar fyrir þá sem geta ferðast um á farartækjum eða fara í stuttar ferðir og þurfa ekki að velta þyngdinni mikið fyrir sér.

Carbon-fiber skóflur eru mjög léttar og eiga að vera sterkar samkvæmt því sem framleiðendur segja.  Sumir framleiðendur carbon blaða bjóða endurnýjun á blaðinu brotni það við eðlilegar aðstæður.

Það er ekki eingöngu blaðið sem þarf að vera sterkt heldur einnig festingin við skaftið.  Misjafnt er hvernig það er útfært eftir því hvort um plast- eða málmblöð er að ræða.

Blað skóflu

Hér að neðan eru slóðir á vefsíður sem eru með skóflur á boðstólum.

http://www.voile-usa.com/avygear.html

http://www.ortovox.com/typo7/index.php?id=22&L=1

http://www.life-link.com/llshovels.htm

http://backcountryaccess.com/bca_products/shovels_probes.php

http://www.stubai-bergsport.com/avalanche_shovel_rescue_produkte_art_15346.html

AlmenntReccoSnjóflóðaýlarSnjóskóflurSnjóflóðaleitarstöng









                                                 Titiltexti