Myndir
Fróðleikur
www.snjoflod.is

Notkunar skilmálar

Suluhryggir_Sydra-Fjallabaki_2004-01-11

Skíðamynd  

 


Forsíða
Búnaður
Á döfinni
ORION logo

Þetta vefsetur er unnið af:
  ORION Ráðgjöf ehf
  Foldarsmára 6
  201 Kópavogi
  Sími: 552 9970
  Netf.: arni@orion.is
  Veff.: www.orion.is

Almennt um búnað (hin heilaga þrenning)

Réttur búnaður ferðalanga á fjöllum að vetrarlagi getur skipt sköpum ef einhverjir þeirra lenda í óhöppum eins og snjóflóðum. 

Það skiptir miklu máli hverslags ferðalög er verið að fara í.  Spurningin er hvort búnaðurinn þarf að vera léttur eða hvort hann má vera svolítið efnismeiri og þyngri og þar með yfirleitt sterkari.
Ekki þarf að hugsa um þyngd snjóflóðaýla í þessu samhengi en nokkur munur getur verið á þyngd snjóflóðaleitarstanga og snjóskófla.

Léttur búnaður

Í löngum gönguferðum með bakpoka er nauðsynlegt að hafa þyngd búnaðar í huga.  Ýlir er bornir innan klæða, þ.e. undir yfirhöfn eða í buxnavasa með rennilás, en snjóflóðaleitarstöng og snjóskófla eru höfð í bakpoka með öðrum búnaði.  Skóflur eru þá oft úr plasti og frekar litlar en stangir úr áli og oft ekki nema um 2-3 m á lengd.

Þyngri og öflugri búnaður

Þeir sem ferðast að mestu leiti á farartækjum og/eða ganga aðeins stuttar vegalendir með bakpoka með öryggisbúnaði í ættu að velja búnað sem er sterkari en sá búnaður er sem rætt er um hér að ofan.  Þessi búnaður er yfirleitt nokkuð þyngri sérstaklega snjóskóflan.
Svona búnaður gæti hentað ágætlega þeim sem aka um á snjósleðum eða bílum t.d. starfsmönnum  Vegagerðarinnar, veitufyrirtækja og lögreglu.  Þetta á einnig við snjósleðaflokka björgunarsveitanna og aðra frístunda snjósleðamenn.

Það er mikilvægt að búnaðurinn sé í bakpoka á hverjum einstaklingi sem er á snjósleða því lendi hann í snjóflóði og missi við það sleðann þá er lítið gagn í búnaði sem er á sleðanum undir snjóflóði!

Ástæða þess að menn ættu ekki að bera snjóflóðaleitarstangir og skóflur utan á bakpoka er sú að þessir hlutir geta slegist í höfuð manna og skaðað þá, ef þeir kútveltast í snjóflóði.

Myndin sýnir hina Heilögu þrenningu sem allir fjallamenn ættu að hafa á ferðalögum.  Álskóflan á myndinni er frekar í þyngri kantinum og er með framlengingu sem er inni í skaftinu en snjóflóðaleitarstöngin er létt og er úr 40 cm einingum og er 3,2 m á lengd.

Innan tíðar koma upplýsingar um snjóflóðastangir. 

AlmenntReccoSnjóflóðaýlarSnjóskóflurSnjóflóðaleitarstöng









                                                 Titiltexti